Þjálfari 1, sérgreinahlutinn í skíðagöngu, verður haldinn á Akureyri helgina 5.-7. janúar.
Kristján Hauksson, einn okkar albesti þjálfari og reynslubolti, heldur námskeiðið sem er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Til að klára þjálfari 1 þarf líka að taka almennahlutann í fjarnámi hjá ÍSÍ en það má gera það eftir á.
Sjá upplýsingar hér: 1. stig (isi.is)
Dagskrá:
Laugardagur
09:00-12:00 og 14:30-20:00 Bóklegt og verklegt
Sunnudagur
09:00-13:00 Bóklegt og verklegt
Skráning fer fram á ski@ski.is
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu