Sturla Snær Snorrason, sem er flestum ef ekki öllum skíðaáhugamönnum á landinu kunnugur, dustaði rykið af skíðunum í haust eftir langa pásu og æfir með landsliði Íslands í vetur.
Keppnistímabilið byrjaði hjá honum í gær þegar hann tók þátt í alþjóðlegu móti í svigi í Suomu á Finnlandi. Eftir góða byrjun þá tók hann næst síðasta portið í klofið og var dæmur úr leik. Hann gerði hins vegar gott betur í dag þegar hann tók þátt í öðru svigmóti á sama stað en með rásnúmer 66 skíðaði hann sig niður í 5. sæti eftir fyrri ferðina og átti síðan lang besta tímann í seinni ferðinni og endaði í öðru sæti. Hann gerði 29.26 FIS punkta sem er veruleg bæting á heimslista og ekki langt frá hans besta móti á ferlinum.
Sjá úrslit hér: FIS Suomu (FIN)
Skíðasambandið heyrði í Sturlu eða Stulla eins og hann er oft kallaður og hafði hann þetta að segja:
"Þetta var áskorun, en það var mikill ís/klaki í brautinni sem hefur yfirleitt hentað mér vel en var klárlega aðeins erfiðar eftir þessa pásu. Tilfinningin að komast á pall var góð og ég fann fyrir létti. Það er gott að sjá hvar maður stendur skíðalega séð og koma sér aftur í gang. Ég á klárlega mikið inni, þetta er bara byrjunin."
SKÍ óskar Stulla til hamingju með frábæran árangur og endurkomu.