Sameiginlegt hóf ÍSÍ og Samtaka íþróttafréttamanna fór fram í Silfurbergi í Hörpu í gær laugardaginn 4. janúar 2025.
Þar voru afhentar viðurkenningar til íþróttfólks sérsambanda, íþróttaeldhuga ársins, útnefning í Heiðurshöll ÍSÍ og einnig fór fram kjör íþróttamanns ársins 2024.
Snjóbrettakona ársins 2024 er Anna Kamilla Hlynsdóttir og skíðamaður ársins 2024 er Matthías Kristinsson.
Anna Kamilla Hlynsdóttir, snjóbrettakona ársins 2024
Aldur: 20 ára
Félag: Brettafélag Hafnafjarðar
Anna Kamilla sem æfir með NTG Geilo og íslenska landsliðinu er okkar allra besta snjóbrettakona. Hún hefur statt og stöðugt bætt stöðu sína á heimslista og í dag er hún í 103. sæti í brettastíl og 124. sæti í risastökki á FIS lista. Á WSPL er hún í 71. sæti í brettastíl og 98. sæti í risastökki og hefur hún unnið sér inn rétt til að taka þátt í Heimsbikarmótum. Þetta er lang besti árangur sem íslensk snjóbrettakona hefur náð.
Anna Kamilla er sterk og með bakgrunn úr fimleikum sem hjálpar henni heil mikið með erfiðari „trixin“ og eins er hún rosalega hugkrökk sem er nauðsynlegt til að ná árangri í snjóbrettum.
Anna Kamilla byrjaði keppnistímabilið mjög vel þegar hún tók þátt í FIS mótum í Landgraaf í Hollandi og endaði í 2. og 3. sæti í brettastíl.
Matthías Kristinsson, skíðamaður ársins 2024
Aldur: 19 ára
Félag: Skíðafélag Ólafsfjarðar
Matthias sem æfir einnig með NTG Geilo bætti stöðu sína verulega á heimslista á þessu ári. Hann fór frá því að vera númer 444 á heimslista í svigi í númer 198, sem er stórglæsilegur árangur og mikil framför.
Matthias æfir og keppir af miklum krafti í Noregi samhliða því að æfa og keppa með Skíðalandsliði Íslands. Hann sýndi mikinn styrk á alþjóðlegum mótum erlendis í vetur þar sem hann var 18 sinnum í top 10, þar af 5 sinnum á palli og með 2 sigra. Einnig byrjar hann nýtt keppnistímabilið af krafti með því að bæta punktastöðu sína í stórsvigi.
Skíðasamband Íslands óskar þessu frábæra íþróttafólki til hamingju með viðurkenninguna.