Skíðaþing 20. og 21. september á Ísafirði

75. Skíðaþing verður haldið á Ísafirði föstudaginn 20. og laugardaginn 21. september nk.

Venju skv. hefst dagskrá þingsins síðdegis, en endanleg tímasetning mun taka mið af tímaáætlun flugs síðdegis til Ísfjarðar, en áætluð koma til Ísafjarðar er kl. 18:30 föstudaginn 20. september.

Dagskrá þingsins með nánari upplýsingum verður send sambandsaðilum eigi síðar en tveimur vikum fyrir þingið ásamt upplýsingum um tillögur og mál sem leggja á fyrir þingið. Þingið getur þó tekið fyrir mál borin upp með skemmri fyrirvara að fengnu samþykki ⅔ hluta þingfulltrúa.