Nú hefjum við starfið í hæfileikamótun á snjóbrettum. Starfið er fólgið í því að aðstoða ungt og efnilegt snjóbrettafólk að ná markmiðum sínum á æfingum og í keppni. Helstu markmið vetrarins verður að skapa vettvang fyrir iðkendur að kynnast því hvað er að vera afreksíþróttamaður, auka tæknilega færni og skapa tækifæri fyrir iðkendur frá öllum landshlutum til að koma saman og æfa. Brettanefnd SKÍ er að setja upp dagskrá þar sem vonandi allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og verður hún kynnt fyrir jól.
Um næstu helgi verður sameiginleg æfing fyrir snjóbrettaunglinga á Íslandi. Æfingin fer fram á Akureyri og verður það Skíðafélag Akureyrar sem sér um hana. Þessi æfing er í boði fyrir alla sem fæddir eru 2003 – 2007. Þátttökugjald fyrir helgina er 17.000 kr.
Skráningum á að skila á dagbjartur@ski.is fyrir þriðjudaginn 7. desember.
Í skráningunni þarf að tilgreina nafn og kennitölu þátttakanda.
Með skráningunni þarf að fylgja greiðslukvittun þar sem kemur fram fyrir hvern er verið að greiða.
Bankaupplýsingar 0162-26-003860, kt. 590269-1829.
Dagskrá næstu helgar
Æfingahelgi fyrir brettaiðkendur á Akureyri dagana 10-12. desember 2021
Gisting: Terían, salur í íþróttahöllinni (við hliðina á Sundlaug Akureyrar). Dýnur á staðnum.
Föstudagur: 17.00 – 21.00 Mæting til Akureyrar 19.00 – 21.00 Braggaparkið opið fyrir okkur
Laugardagur: 08.00 – 09.00 Morgunmatur 10.00 – 12.00 Brettaæfing í Hlíðarfjalli 12.00 – 13.00 Hádegismatur – samlokur og drykkir 13.30 – 15.00 Brettaæfing á bak við Skautasvellið 15.00 – 17.00 Sund, heitir pottar og gufa í Sundlaug Akureyrar 17.00 – 19.00 Frjáls tími 19.00 – 20.30 Pizzuveisla í íþróttahöllinni Sunnudagur: 08.00 – 09.00 Morgunmatur 10.00 – 12.00 Brettaæfing í Hlíðarfjalli 12.00 – 13.00 Hádegismatur 13.00 – 15.00 Sund, heitir pottar og gufa fyrir þá sem vilja 15.00 Dagskrá endar
Innifalið:
Þarf að koma með:
Nánari upplýsingar veitir afreksstjóri SKÍ Dagbjartur í síma 660 1075 eða í tölvupósti.