Skíða- og snjóbrettahús
Snjóframleiðsla í Bláfjöllum er frábær viðbót í aðstöðusköpun fyrir allt skíðafólk á Íslandi. Það tryggir að hægt sé að fara fyrr á skíði og gerir undirlagið fyrir náttúrulegan snjó betra. Þessi framkvæmd, sem komst í gagnið nýlega, er fyrsti áfangi í mikilli uppbyggingu skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu sem samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ákváðu árið 2018 að ráðast í.
Veðurfar og vindar Íslands
En betur má ef duga skal. Skíðafólk Íslands þarf samt sem áður að eiga við veðurguðina og þeir eru okkur oft á tíðum ekki hliðhollir. Vindurinn er versti óvinur skíðafólks. Gróflega áætlað má segja að vegna veðurs sé einungis hægt að hafa lyfturnar í Bláfjöllum opnar í 50% tilfella þó að nægur snjór sé í fjallinu. Það gefur okkur skíðadaga upp á 40-70 daga á ári og er því íþróttahúsið okkar lokað í um 300 daga á ári og sjá allir mjög augljóslega að engin íþróttagrein getur sætt sig við svoleiðis aðstöðu. Það dugar okkur ekki ef við ætlum að „Vinna gullið saman“ eins og boðað var á nýafstaðinni ráðstefnu sem haldin var af ÍSÍ með Vésteini Hafsteinssyni, nýjum afreksstjóra ÍSÍ, í broddi fylkingar. Við skíðafólk þurfum nýtt íþróttahús til að vinna gullið.
Ný og gömul hugmynd
Fólk innan Skíðasambands Íslands hefur verið að kanna mögulega byggingu skíðahúss á höfuðborgarsvæðinu. Skíðahús er nauðsynlegt fyrir skíðaíþróttina á sama hátt og knattspyrnuhús eru nauðsynleg fyrir knattspyrnuna á Íslandi. Húsið myndi nýtast öllum, bæði almenningi og keppnisfólki. Íslenska veðrið leikur knattspyrnufólk oft grátt en óhætt er að segja að veðrið hafi meira afgerandi áhrif á skíðafólk þar sem veður eru vályndari á veturna en sumrin. Ótrygg snjóalög og stuttur tími til æfinga hefur nú orðið tilefni til að endurskoða hugmynd um skíðahús frá því árið 2005.
Óslóarhúsið heitir „SNÖ“
Í skíðahúsi er hægt að hafa opið í 365 daga á ári. Fyrirtækið Alpine X er að reisa 20 skíðahús víðsvegar um Bandaríkin. Í Evrópu eru tugir skíðahúsa (yfir 70 hús) sem öll eru rekin með hagnaði. Í Osló í Noregi er eitt glæsilegasta skíðahús í heimi með brautir fyrir alpagreinar, bretti og skíðagöngu, auk þess sem þar er ísklifurveggur og önnur afþreying. SNØ, eins og skíðahúsið heitir, er staðsett við stórt íbúðasvæði í Lorenskøg þannig að fólk úr hverfinu getur auðveldlega gengið í húsið. Almenningssamgöngur eru einnig góðar að húsinu.
Umhverfisvænt og orkusparandi
Eitt það besta við húsið í Noregi er þó að við framleiðsluna á gervisnjónum verður til mikið auka rafmagn sem dugir fyrir 350 íbúðir í Lorenskøg hverfinu. Um það bil 5700 megavattstundir rafmagns eru notaðar í mannvirkið árvisst. Með varmadælukerfi sem drifið er áfram af þessum 5700 MWst fást til baka 7000 MWst til upphitunar í allt að 350 íbúðum í nágrenni SNØ. Varmadælustöð SNØ er staðsett fyrir utan skíðahúsið sjálft og framleiðir kulda með þremur stórum kælivélum sem nota CO2 sem náttúrulegan kælimiðil. Framleiðsla á kulda með varmadælum á einum stað í ferlinu býr til hita á öðrum stað í sama ferli. Þar sem kuldinn er framleiddur eru varmaskiptar notaðir til að kæla húsið. Við það hitnar kælimiðillinn og þegar hann er fluttur með þrýstingsbreytingum sem framkvæmdar eru með rafmagni í hinn hluta ferlisins, hitnar kælimiðillin og eru varmaskiptar einnig notaðir til að kæla sama miðil með upphitun húsanna.
Niðurstaðan er því að 5700 MWst af rafmagni gefa af sér orku til kælingar og snjóframleiðslu sem samsvarar 8700 MWst inni í skíðahúsinu og orku til upphitunar sem samsvarar 7000 MWst. Þetta væri líka hægt að gera í okkar skíðahúsi á Íslandi.
Myndin hér fyrir ofan er skýringarmynd frá SNØ um orkujafnvægið í húsinu og nánasta umhverfi.
Úlfarsfellið er kjörið fyrir skíðahús
Svæðið sem horft hefur verið til hér á landi er Úlfarsfellið. Því svæði svipar um margt til svæðisins í Osló. Það er nálægt íbúðabyggð og útivistarsvæði þannig að margfeldisáhrifin yrðu mikil. Áhugafólk innan skíðahreyfingarinnar lét teikna skíðahús í Úlfarsfelli árið 2005 með forgöngu Helga Geirharðssonar, verkfræðingins og skíðamanns. Hugmyndin um skíðahús í Úlfarsfelli náði ekki flugi þá og mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Nú dustum við rykið af eldri gögnum og áhugasamir einstaklingar innan Skíðasambands Íslands eru í samtali við fjárfesta að koma að verkefninu. Brekkan í Úlfarsfelli yrði lengsta innanhúss skíðabrekka í heimi, eða um 800 metra löng. Hallinn í henni hentar einnig vel til alþjóðlegra skíðamóta sem gefur húsinu aukið vægi á alþjóðavísu. Hægt yrði að halda alþjóðleg mót og taka á móti erlendum landsliðum og félögum, enda er stutt að koma til Íslands frá meginlandi Evrópu auk Bandaríkjanna. Einnig er væri æskilegt að setja skíðagönguspor í húsið líkt og í Osló og hafa brautina a.m.k. 1,5 km langa. Það gæti einnig verið áhugavert að reisa hótel í tengslum við svona hús auk annarra rýma fyrir íþróttir á borð við borðtennis, skauta, bogfimi og klifur. Utanhúss væri hægt að vera með „downhill“ fjallahjólabraut, „zip-line“ og fleira. Úlfarsfellið yrði áfram paradís göngufólks og mögulega væri hægt að hafa veitingastað á toppnum, eins og fyrstu teikningar gerðu ráð fyrir. Útsýnið frá Úlfarsfellinu er ægifagurt og heilt yfir yrði þetta stórkostleg framkvæmd og fellið myndi iða af lífi allt árið um kring.
Hugmyndin er viðskiptatækifæri
Reykjavíkurborg kæmi einungis að málinu með því að úthluta svæðinu fyrir rekstur af þessu tagi, enda yrði þetta hugsað fyrir almenning, ferðafólk, keppnisfólk og ekki síst unga skíðaiðkendur. Hægt væri að gera samninga við sveitarfélögin þannig að skólakrakkar hefðu greiðan aðgang að húsinu. Við teljum að húsið yrði ekki í samkeppni við skíðasvæðin heldur myndi það styrkja þá starfsemi og svæðin vinna saman að eflingu skíðaíþróttarinnar á Íslandi. Flestir myndu alltaf vilja skíða úti, en það eru fáir dagar í boði á ári. Þar að auki yrði miklu styttra fyrir fólk að fara í skíðahúsið eftir vinnu á virkum dögum. Skíðahúsið er hugsað sem einkaframvæmd án aðkomu bæjar eða ríkis. Ferðamannafjöldinn á Íslandi eykst ár frá ári og yrði þetta kærkomin viðbót við afþreyingu fyrir þann hóp.
Aðalsteinn Valdimarsson, formaður brettanefndar SKÍ
Bjarni Th. Bjarnason, formaður SKÍ
Brynja Þorsteinsdóttir, afreksstjóri SKÍ
Einar Ólafsson, formaður skíðagöngunefndar SKÍ
Helgi Geirharðsson, verkfræðingur og fyrrverandi formaður mannvirkjanefndar SKÍ
Jónas Egilsson, framkvæmdastjóri SKÍ
Sigurður Nikulásson, formaður alpagreinanefndar SKÍ
Athugið að þetta er grein sem birtist í Morgunblaðinu 3. febrúar 2024