Vetrarólympíuleikarnir í PyeongChang í Suður-Kóreu voru settir við hátíðlega athöfn kl. 20:00 að staðartíma eða kl. 11:00 að íslenskum tíma í morgun. Leikarnir standa yfir næstu 16 daga. Setningarhátíðin var glæsileg í alla staði og mikil skrautsýning þar sem blandað var saman atriðum sem endurspegluðu bæði fortíð og framtíð. Það hefur verið afar kalt í veðri í PyeongChang síðustu daga en þegar setningarhátíðin hófst var hitastigið um frostmark. Íslenski hópurinn var glæsilegur þegar hann gekk inn á leikvanginn en það var Freydís Halla Einarsdóttir sem var fánaberi liðsins. Fatnaður hópsins er frá kínverska íþróttavöruframleiðandanum Peak og er sérhannaður fyrir hópinn.
Um 3.000 keppendur taka þátt í þessum 23. Vetrarólympíuleikunum sögunnar en Ísland sendir að þessu sinni fimm keppendur til leiks, tvo í alpagreinum og þrjá í skíðagöngu. Snorri Einarsson keppir fyrstur Íslendinga í 30 km skiptigöngu á sunnudag og Freydís Halla Einarsdóttir keppir svo í stórsvigi á mánudag. Það verður spennandi að fylgjast með íslensku keppendunum á leikunum en RÚV mun sýna fjölmarga viðburði frá leikunum, þar með talið frá keppni íslensku þátttakendanna.