Öllum mótum helgarinnar á vegum SKÍ frestað

Sérlega slæm veðurspá er fyrir helgina eins og sjá má á mynd Veðurstofunnar.
Sérlega slæm veðurspá er fyrir helgina eins og sjá má á mynd Veðurstofunnar.

Þremur mótum á vegum SKÍ sem áttu að vera um helgina er frestað.

Það eru skíðagöngumót sem hafði verið fært til Akureyrar, Bikarmók í alpagreinum á Dalvík og FIS mót á snjóbrettum sem átti að vera í Bláfjöllum.

Þessum mótum er frestað vegna sérlega slæms veðurútlits bæði á mótstíma og vegna hættulegra ferðaskilyrða. Fagnefndir SKÍ munu taka nýjar dagsetningar og mögulega nýjar staðsetningar til umræðu og skila tillögum fljólega.