Kristrún Guðnadóttir og Isak Stianson Pedersen hafa lokið keppni í spennandi fyrstu umferðum sprettgöngu kvenna og karla á Vetrarólympíuleikunum í Peking.
Kristrún var með rásnúmer 71 af 91 keppanda í greininni og kom í mark á 3:49,59 mínútum. Kristrún endaði í 74. sæti í greininni. Jonna Sundling frá Svíþjóð náði langbesta tímanum en hún fór brautina á 3:09,03 mínútum. Þetta er frumraun Kristrúnar á Vetrarólympíuleikum. Sprettgangan var eina keppnisgrein Kristrúnar og hefur hún því lokið keppni á leikunum.
Isak var með rásnúmer 61 af 92 keppendum og kom í mark á 3:11,95 mínútum. Hann endaði í 78. sæti þegar allir höfðu skilað sér í mark. Lucas Chanavat frá Frakklandi náði besta tímanum, 2:45,03 mínútur. Isak er á sínum öðrum Vetrarólympíuleikum en hann keppti í sprettgöngu í Pyeongchang árið 2018. Isak keppir í liðaspretti (Team Sprint Classic) 16. febrúar nk. ásamt Snorra Einarssyni.
Kristrún og Ísak komust ekki áfram í næstu umferðirnar í sprettgöngunum þar sem einungis 30 efstu vinna sér inn rétt til áframhaldandi keppni. Alls verða umferðirnar fjórar og fara allar fram í dag en einungis sex keppendur keppa í síðustu umferðinni. Það reynir því mikið á keppendur sem þurfa að keyra sig vel út í hverri umferð til að ná tíma sem gefur áframhaldandi þátttökurétt í greininni.
Hér er hlekkur á viðtal RÚV við Kristrúnu að lokinni keppni.