Jón Erik vann stórsvigsmót á Ítalíu í dag

Jón Erik sigurðsson landsliðsmaður úr Fram og Bjarni Þór Hauksson landsliðsmaður úr Víkingi tóku þátt í alþjóðlegum mótum í Folgaríu á Ítalíu í gær og í dag. 

Í gær kepptu þeir í svigi og endaði Jón Erik í 2. sæti eftir að hafa verið með 10. besta tímann eftir fyrri ferðina, en hann náði besta brautartímanum í seinni ferðinni. Bjarni Þór náði því miður ekki að ljúka fyrri ferðinni. 

Sjá úrslit hér: FIS | Alpine Skiing Results - Folgaria (ITA) 2024/2025

Þeir kepptu síðan á tveimur stórsvigsmótum í dag og vann Jón Erik fyrra mótið, en hann var með besta tímann í báðum ferðum. Hann fékk 33.29 FIS punkta fyrir mótið sem eru hans bestu stórsvigspunktar á ferlinum. Bjarni Þór var með 12. tímann í fyrri ferðinni en náði að keyra sig upp í 8. sætið.

Sjá úrslit hér: FIS | Alpine Skiing Results - Folgaria (ITA) 2024/2025

Á seinna mótinu þá varð Jón Erik í 2. sæti og bætti FIS punktana sína lítillega og Bjarni Þór varð í 5 sæti. Virkilega vel gert hjá landsliðsstrákunum okkar. 

Sjá úrslit hér: FIS | Alpine Skiing Results - Folgaria (ITA) 2024/2025

 

Landsliðskonan okkar Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir tók þátt í tveimur alþjóðlegum mótum í risasvigi í dag í Malles-Watles á Ítalíu. Hún endaði í 6. sæti á fyrra mótinu og fékk 51.83 FIS punkta sem eru hennar næst bestu risasvigspunktar á ferlinum og í seinna mótinu endaði hún í 14. sæti og fékk hún 57.67 FIS punkta. 

Sjá úrslit hér: FIS | Alpine Skiing Results - Malles-Watles (ITA) 2024/2025

Sjá úrslit hér: FIS | Alpine Skiing Results - Malles-Watles (ITA) 2024/2025

Skíðasambandið óskar þeim öllum til hamingju með árangurinn.