Skíðasamband Íslands hefur valið íþróttakonu og íþróttamann ársins 2019.
Íþróttakona ársins er María Finnbogadóttir (alpagreinar) og íþróttamaður ársins er Snorri Einarsson (skíðaganga).
Íþróttakona ársins - María Finnbogadóttir
María Finnbogadóttir er íþróttakona ársins hjá SKÍ í fyrsta sinn. María hefur bætt sig gríðarlega á árinu og er kominn í 395.sæti á heimslista í svigi eftir að hafa byrjað árið í 1244.sæti. María keppti fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramótinu í Åre í Svíþjóð, þar sem hún endaði í 38.sæti í svigi og rétt missti af seinni ferð í stórsvigi þar sem hún endaði í 61.sæti, en einungis 60 efstu komust í seinni ferðina. María stóð sig vel á mörgum öðrum mótum erlendis þetta árið og varð hún m.a. fimm sinnum í einu af 10 efstu sætunum og ber þar hæst 10. sæti á Slóvenska meistaramótinu í svigi í mars. Hún hefur einnig farið mjög vel af stað þennan veturinn og varð hún m.a. í 11. sæti á svigmóti í Pass Thurn í Austurríki 7.desember þar sem hún gerði sína bestu FIS stig á ferlinum, 45,22 stig.
María varð Íslandsmeistari í svigi árið 2019 og endaði í 6.sæti í stórsvigi á Skíðamóti Íslands.
Staða á heimslista:
Helstu úrslit:
Íþróttamaður ársins - Snorri Einarsson
Snorri Einarsson er íþróttamaður ársins hjá SKÍ í fjórða skipti og jafnframt fjórða árið í röð. Snorri hefur sýnt ákveðna yfirburði innan SKÍ enda eini aðilinn sem tekur þátt í sterkustu mótaröð heims innan FIS, heimsbikarnum. Hápunktur Snorra var á heimsmeistaramótinu í Seefeld í Austurríki þegar hann náði 18.sæti í 50 km göngu með frjálsri aðferð. Er þetta besti árangur hjá íslenskum skíðagöngumanni frá upphafi. Hann var einungis 18 sekúndum frá 3.sætinu í tæplega 2 klst langri keppni. Einnig má nefna að Snorri hafði rásnúmer 52 en ræst var út eftir stöðu á heimslista og náði því að vinna sig mikið upp og í kjölfarið tók Snorri stórt stökk á heimslistanum. Á árinu hefur Snorri farið upp heimslistann í lengri vegalengdum og farið úr 288.sæti í 103.sæti. Helgina eftir HM náði Snorri aftur glæsilegu móti þegar hann endaði í 26.sæti í heimsbikar í Oslo, Noregi, þá aftur í 50 km göngu. Snorri tók einnig þátt í Tour de Ski sem er hluti af heimsbikarmótaröðinni og fer fram um áramótin. Tour de Ski fer þannig fram að farnar eru sjö göngur (sprettur og lengri vegalengdir í bland) á níu dögum á alls fjórum keppnisstöðum í þremur löndum. Mikil þrekþraun þar sem Snorri endaði í 37.sæti í heildarkeppninni.
Snorri varð fjórfaldur Íslandsmeistari og vann allt sem hann gat á Skíðamóti Íslands.
Staða á heimslista:
Helstu úrslit: