Þau Kristrún Guðnadóttir og Sturla Snær Snorrason verða fánaberar Íslands á setningarhátíð Vetrarólympíuleikanna í Peking föstudaginn 4. febrúar nk.
Setningarhátíðin hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma og mun RÚV sýna beint frá hátíðinni.
Sami háttur verður hafður á núna og á setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó að fánaberar þátttökulandanna verða tveir, ein kona og einn karl.
Inngangan raðast eftir kínverska stafrófinu og kemur því að íslenska hópnum um miðbik inngöngunnar.