Dagur Benediktsson og Matthías Kristinsson byrja keppnistímabilið vel

Dagur Benediktsson í Muonio í Finnlandi
Dagur Benediktsson í Muonio í Finnlandi

Landsliðsmaðurinn okkar í skíðagöngu, Dagur Benediktsson, byrjaði keppnistímabilið heldur betur vel þegar hann tók þátt í sínu fyrsta móti í vetur í Muonio í Finnlandi um helgina.

Dagur keppti í 10 km með hefðbundinni aðferð á laugardaginn þar sem hann endaði í 61 sæti og gerði 135.90 FIS stig en á sunnudaginn þá bætti hann um betur og endaði í 47 sæti og gerði 76.72 FIS stig sem er hans besti árangur á ferlinum. 

Sjá úrslit hér: FIS Cross-Country - Olos, Muonio (FIN) - Event Details

 

Landsliðsmaðurinn okkar Matthías Kristinsson byrjaði sitt keppnistímabil einnig vel þegar hann tók þátt í þremur alþjóðlegum svigmótum í skíðahúsinu Snø í Oslo í byrjun nóvember.

Matthías náði í brons á fyrsta mótinu, silfur á öðru mótinu og svo varð hann í 4. sæti á þriðja mótinu eftir að hafa verið með besta tímann eftir fyrri ferð.

Sjá úrslit hér: FIS Alpine Skiing - Oslo Indoor Skiing Arena (NOR) - Event Details

Það verður spennandi að fylgjast með þeim í vetur sem og öllu okkar landsliðsfólki.

 

Skíðasambandið óskar þeim til hamingju með flottan árangur.