Allt landsliðsfólkið okkar í alpagreinum er mætt til landsins til að taka þátt í Atomic Cup mótaröðinni og Skíðamóti Íslands sem fram fer í Oddsskarði í vikunni og um helgina. Einnig er mætt til leiks okkar unga og efnilega skíðafólk ásamt erlendum keppendum frá Mexíkó, Kína og Kanada.
Í dag þriðjudag hófst Atomic Cup mótaröðin en hún saman stendur af tveimur alþjóðlegum stórsvigsmótum sem fram fóru í dag og tveimur alþjóðlegum svigmótum sem fram fara á morgun í bæði karla og kvenna flokki. Veðrið lék við keppendur og starfsfólk í Oddsskarði í dag og voru aðstæður mjög góðar.
Á föstudaginn hefst síðan Skíðamót Íslands með keppni í stórsvigi karla og kvenna og á laugardaginn verður keppt í svigi karla og kvenna og eru mótin jafnframt aljóðleg mót. Skíðamót Íslands lýkur síðan á sunnudaginn með keppni í samhliðasvigi. Það er því sannkölluð skíðaveisla framundan í Oddskarði.