Arnór Dagur Þóroddsson í 3. sæti í Austurríki

Landsliðsmaðurinn okkar í snjóbrettum, Arnór Dagur Þórodsson úr BFH, keppti á aþjóðlegu móti um síðustu helgi. 

Mótið sem kallast Valley Ralley fór fram í Zillertal í Austrurríki og gerði Arnór Dagur sér lítið fyrir og nældi í bronsið. 

Hann skoraði 83 stig á mótinu en sigurveigarinn skoraði 86 stig. Fyrir mótið fékk Arnór  Dagur 271.76 stig og er núna kominn með 256.97 stig og er í 96. sæti á heimslista. 

Frábær árangur hjá okkar manni og óskar SKÍ honum innilega til hamingju.

Sjá úrlsit hér: WSPL Ranking - World Snowboard Federation