Jón Erik Sigurðsson gerði sína bestu FIS punkta á ferlinum

Landsliðsmaðurinn okkar Jón Erik Sigurðsson tók þátt í sínu fyrsta móti vetrarins í Suomu í Finnland.

Jón Erik sem var með rásnúmer 16 átti góða ferð og var í 6. sæti eftir fyrri ferðina en gerði svo gott betur og náði 4. besta tímanum í seinni og endaði í 5 sæti og gerði 46.38 FIS punkta sem er hans besti árangur á ferlinum. Aðstæður voru mjög krefjandi en brekkan var ísilögð og brautin með miklum beyjum.

Aðspurður sagðist Jón Erik eiga nóg inni en var mjög sáttur að bæta sig á fyrsta mótinu á nýju keppnistímabili. 

Næstu mót hjá landsliðinu í alpagreinum verða 23.-24. nóvember og verða þau einnig í Finnlandi. Það verður spennandi að fylgjast með Jóni Erik og liðsfélögum hans í vetur. 

Skíðasamband Íslands óskar honum til hamingju með árangurinn.