Alpagreinar
Landsliðshópur karla
Miðvikudagur, 01. September 2010 11:02

p8260414_small

Karla landsliðshópur SKI var á sinni fyrstu samæfingu sl helgi á Akureyri. Landsliðsþjálfarin Ånen Giverhaug stjórnaði þrekæfingunum. Á meðfylgjandi mynd  er hópurinn frá vinstri Róbert Ingi Tómasson SKA, Ånen þjálfari, Sturla Snær Snorrason Ármanni, Sigurgeir Halldórsson SKA, Brynjar Jökull Guðmundsson Víking og  Jón Gauti Ástvaldsson. Jakob Helgi Bjarnason er við nám í Noregi.  Landsliðshópurinn fer væntanlega til Noregs um miðjan september þar sem þeir munu verða við æfingar á Juvas jökli.

 
Irís Guðmundsdóttir slasaði sig í gær við æfingar á Sass Fee í Sviss
Miðvikudagur, 01. September 2010 10:44

iris_gudmundsdottir

Okkar besta skíðakona hún Iris Guðmundsdóttir datt á stórsvigsæfingu í gær og slasaðist á hné.  Iris er væntanleg til Noregs á morgun þar sem hún mun gangast undir nánari læknisskoðun.

Íris keppti fyrir Ísland á ólympíuleikunum í Kanada í febrúar 2010. Skíðasamband Íslands sendir Irisi góðar kveðjur um von um fljótan bata.

 
Kvenna þjálfari alpagreina
Miðvikudagur, 01. September 2010 10:34

gummi2
SKI hefur ráðið Guðmund Sigurjónsson til þess að hafa umsjón með þjálfun og verkefnum landsliðshóps kvenna og æfingahóps kvenna.  Guðmundur mun starfa í samráði við landsliðsþjálfara SKÍ, Ånen Giverhaug.
Guðmundur hefur langa reynslu sem þjálfari, bæði með félagsliðum og liðum Skíðasambandsins en Guðmundur var landsliðsþjálfari á árunum 1997 til 1998.
 
Íslendingur framkvæmdastjóri skíðamenntaskóla í Noregi.
Miðvikudagur, 01. September 2010 10:26

„Nýlega var Bjarni Th. Bjarnason, viðskiptafræðingur MBA og skíðaþjálfari, ráðinn sem framkvæmdastjóri Dönsk Alpin skíðamenntaskólans í Akerhusfylki í Noregi. Skólinn nýtur virðingar í Noregi fyrir að hafa skilað flestum af betri skíðamönnum inn í afrekslið á vegum norska skíðasambandsins á undanförnum árum. Skólinn er samstarfsverkefni Akershusfylkis og Bærum Skiklubb og hefur verið rekinn í 8 ár. Hlutverk skólans er að gefa skíðamönnum kost á að stunda sína íþrótt samhliða námi. Markmiðið er að stuðla að því að skíðamenn frá Dönski Alpin fari alla leið í sinni íþrótt og keppi í heimsbikarnum í alpagreinum. Bjarni er vel kunnugur í íslenska skíðaheiminum og hefur starfað sem þjálfari fyrir ýmsa íslenska skíðahópa jafnt á Íslandi sem erlendis á undanförnum árum. Sonur Bjarna, Jakob Helgi, er nýbyrjaður í námi í sama skóla. Skíðasamband Íslands óskar Bjarna til hamingju með nýja starfið.

 
Landsliðshópur alpagreina
Fimmtudagur, 26. Ágúst 2010 13:30

skilogo_new
Valinn hefur verið landsliðshópur alpagreina á skíðum veturinn 2010-2011.

Fremstur í flokki fer Björgvin Björgvinsson sem tekur þátt í Heimsbikarmótum vetrarins í svigi ásamt því að verða í eldlínunni á heimsmeistarmótinu í svigi í Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi í febrúar. Fjalar Úlfarsson verður aðstoðarmaður Björgvins í vetur.

Landsliðshóp SKI skipa:
Erla Ásgeirsdóttir BBL, Fanney Guðmundsdóttir Ármanni, Freydís Halla Einarsdóttir Ármanni, Írís Guðmundsdóttir SKA, Katrín Kristjánsdóttir SKA, María Guðmundsdóttir SKA, Brynjar Jökull Guðmundsson Víking , Jakob Helgi Bjarnason Dalvík, Jón Gauti Ástvaldsson Víking, Róbert Ingi Tómasson SKA, Sigurgeir Halldórsson SKA og Sturla Snær Snorrason Ármanni.

Nýráðinn landsliðsþjálfari, Ånen Giverhaug, skipuleggur og stýrir æfingum landsliðshóps. Guðmundur Sigurjónsson mun sinna sérverkefnum með landsliðshópi kvenna.

Æfingahópur, sem gefst kostur á að taka þátt í fyrstu skíðaæfingu landsliðshóps í Noregi í september, hefur einnig verið valinn.

Æfingahópinn skipa:
Elín Jónsdóttir Isafirði, Erla Guðný Helgadóttir KR, Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir Ármanni, Thelma Rut Jóhannesdóttir Ísafirði, Einar K. Kristgeirsson IR, Hjörleifur Einarsson Dalvík, Magnús Finnsson SKA.

 
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
Flugfélag Íslands
66° Norður
Icelandair
N1
SKÍÐASAMBAND ÍSLANDS - THE ICELANDIC SKI ASSOCIATION
Glerárgata 26, 600 Akureyri - Tel: +354 514 4094, Fax: +354 461 4804 - Email: ski[at]ski.is