| Landsliðsæfing í skíðagöngu |
| Fimmtudagur, 29. Júlí 2010 18:12 |
|
Miðvikudag 28. júlí hófst landsliðsæfing í skíðagöngu. Æfingin byrjaði á Akureyri með tveimur hjólaskíðaæfingum á miðvikudag. Fyrri æfingin á fimmtudag var einnig á hjólaskíðum á Akureyri en síðan verður restin af æfingunni í Skagafirði nánar tiltekið að Steinstöðum. Æfingin er opin fyrir yngri þátttakendur og er síðasti æfingadagur þriðjudagurinn 3. ágúst. Linus Davidsson landsliðsþjálfari sér um æfinguna. Nánari fréttir af æfingunni og myndir koma eftir helgi. |







