| Samæfing í skíðagöngu |
| Föstudagur, 02. Júlí 2010 12:04 |
|
Haldin verður opin landsliðsæfing á vegum skíðagöngunefndar SKÍ dagana 28. júlí - 4. ágúst 2010 að Steinsstöðum í Skagafirði. Mæting er á miðvikudegi 28. júlí og heilir æfingadagar verða frá fimmtudegi til þriðjudags, brottför á þriðjudagskvöldi eða á miðvikudegi 4 ágúst. Einnig verður boðið uppá fræðslu í formi fyrirlestra og/eða kynninga á samæfingunni. Samæfingin verður fjölskylduvæn og opin ÖLLUM (foreldrar og börn og gamalreyndar Vasakempur) og er fólki frjálst að mæta þá daga sem því hentar (þarf ekki að vera allan tímann), en á áður upptöldum dögum mun verða skipulögð dagskrá á vegum skíðagöngunefndarinnar ásamt Linusi Davidsyni landsliðsþjálfara. Hver og einn verður þarna á sínum vegum og við höfum fengið eftirfarandi tilboð frá ferðaþjónustunni á Steinsstöðum: Uppbúið rúm : 2ja manna : 12.900 kr. Uppbúið rúm : 1 manns 8.900 kr. Svefnpokapláss pr.mann: 4.500 kr. Tjaldstæði pr.mann: 1.000 kr. Öll herbergin eru með snyrtingu, hvort sem það er uppbúið eða svefnpokapláss. Síðan er ein nótt frí. Morgunverður: 900 kr.( hlaðborð), Hádegisverður : 1.600 kr.( t.d. súpur, salatbar, brauð - fiskisúpur - gúllassúpa og fl.), Miðdagskaffi: 700 kr., Kvöldverður:1.900 kr ( miðað er við venjulegan heimilismat, fiskréttur, lasagne, pottréttur, kjúklingur) Áhugasamir hafi samband við Óla Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 8617692 fyrir 6. júlí. Einnig þarf ferðaþjónustan að Steinstöðum við fá að vita fjölda þátttakenda sérstaklega í gistinu og mat. Nánari dagskrá kemur seinna. Hvetjum alla til að mæta skíðagöngu nefnd SKI. |







