| Lög SKÍ |
|
1. Skíðasamband Íslands (SKÍ) er æðsti aðili innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, er fer með sérgreinamálefni skíðaíþróttarinnar. 2. Skíðasamband Íslands er samband skíðaráða, héraðssambanda og íþróttabandalaga, og eiga þau félög innan ÍSÍ er iðka skíðaíþróttina og keppa í henni rétt á aðild að SKÍ, enda séu lög þeirra í samræmi við lög SKÍ og ÍSÍ. 3. Tilgangur SKÍ er að hafa yfirstjórn á málefnum skíðaíþróttarinnar á Íslandi og vinna að eflingu hennar. SKÍ kemur fram út á við fyrir hönd ÍSÍ á sviði skíðaíþróttarinnar. SKÍ ákveður leikreglur skíðaíþróttarinnar og löggildir skíðadómara. SKÍ ráðstafar skíðamótum til aðildarfélaga. 4. Málefnum SKÍ er stjórnað af:
5. Skíðaþing hefur æðsta vald um málefni SKÍ. ÍSÍ skal staðfesta samþykktir þess um sérgreinamálefni, enda brjóti þær ekki í bága við lög ÍSÍ og FIS. Fjöldi fulltrúa hvers aðildarfélags miðast við samanlagðan fjölda skráðra keppenda á Andrésar Andar leikum, Skíðamóti Íslands og í Íslandsgöngunni, hver keppandi telur aðeins einu sinni, þannig að fyrir:
Aðildarfélög er skulda SKÍ þegar þingið hefst, missa atkvæðisrétt á þinginu. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála nema ef um lagabreytingu er að ræða, þá þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða á skíðaþingi til þess að hún nái fram að ganga. 6. Skíðaþing skal halda í maí ár hvert. Boða skal til þess með minnst mánaðar fyrirvara. Málefni sem óskast tekin fyrir á skíðaþingi skulu hafa borist stjórn SKÍ fyrir 10. apríl. Dagskrá þingsins skal hafa borist öllum aðildarfélögum eigi síðar en tveimur vikum fyrir þing. Skíðaþing er löglegt sé löglega til þess boðað. 7. Allar laga- og reglugerðabreytingar skulu berast til stjórnar SKÍ til umfjöllunar áður en þær eru lagðar fyrir skíðaþing. Allar tillögur til stjórnarinnar skulu hafa borist fyrir 1.apríl ár hvert til að geta hlotið umfjöllun á næsta skíðaþingi. 8. Á skíðaþingi hafa einungis kjörnir fulltrúar atkvæðisrétt. Auk þeirra eiga rétt til þingsetu og hafa þar málfrelsi:
9. Aukaþing má halda, ef nauðsyn krefur eða helmingur aðildarfélaga óska þess. Allur boðunar- og tilkynningarfrestur til aukaþings má vera helmingi styttri en til Skíðaþings. Fulltrúar á aukaþingi eru þeir sömu og voru á síðasta Skíðaþingi og gilda sömu kjörbréf. Þó má kjósa að nýju í stað fulltrúa sem er forfallaður. Á aukaþingi má ekki gera laga- eða reglugerðabreytingar og ekki kjósa stjórn nema bráðabirgðastjórn, ef meirihluti kjörinnar aðalstjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum orsökum. Að öðru leiti gilda um það sömu reglur og um Skíðaþing. 10. Störf skíðaþings eru:
11. Stjórn SKÍ skal skipuð sjö mönnum: formanni, sex meðstjórnendum og þremur varamönnum. Stjórnin skiptir með sér verkum. Formaður er kosinn til eins árs í senn en aðrir stjórnarmenn til tveggja ára og ganga þrír úr stjórn á hverju ári. Varamenn eru aðeins kosnir til eins árs í senn. Taki varamaður sæti í stjórn í stað aðalmanns skal hann sitja út kjörtímabil þess manns. 12. Stjórnin annast rekstur SKÍ milli skíðaþinga. Meirihluta stjórnar þarf til að mál teljist samþykkt. 13. Stjórn SKÍ skal á hverju hausti boða formenn skíðaráða og skíðadeilda ásamt einum aðstoðarmanni til formannafundar. Verkefni fundarins er að kynna mótaskrá, fara yfir samþykktir síðasta Skíðaþings og undirbúa starf komandi vetrar. Umsóknir um skíðamót, önnur en Skíðamót Íslands og Unglingameistaramót Íslands, skulu berast stjórn SKÍ fyrir 1. september ár hvert. 14. Skíðadómstóll er skipaður 3 aðalmönnum og 3 varamönnum og velur hann formann úr sínum röðum. Kærur skulu vera skriflegar og skal kæran eða tilkynning um hana hafa borist dómstól innan tveggja sólarhringa frá því hið kærða atvik átti sér stað. Póstlögð kæra skal send í ábyrgðapósti. Dómfesta skal mál innan 7 daga frá því að kæra berst dómstól. Þá skal liggja fyrir rökstuðningur kæru að öðrum kosti telst kæra ógild. Vísi dómstóll kæru frá vegna formgalla skal kærandi eiga þess kost að kæra að nýju innan tveggja sólarhringa frá því að honum hefur verið birtur úrskurðurinn. Birta skal aðilum dóm eða úrskurð í ábyrgðarbréfi eða á annan sannanlegan hátt, ef þeir eru ekki viðstaddir dómsuppsögn og skal þá jafnframt greint frá heimild aðila til áfrýjunar og áfrýjunarfresti. Skíðadómstóllinn starfar að öðru leyti samkvæmt dóms- og refsiákvæðum ÍSÍ. 15. Reikningsár SKÍ er frá 1. maí ár hvert til 30. apríl næsta árs. Lög þessi öðlast gildi þegar framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur staðfest þau. Síðast breytt á Skíðaþingi maí 2006 |







